02.01.2012 21:30

Hr. Gordon fékk rjúpu í matinn á gamlársdag, en rjúpuna hafði hann veitt sjálfur.

Guðný og Jóhanna Signý

Hér eru þær Signý og fröken Drífa í Skjaldabjarnarvík , en komið er nýtt, gamalt, albúm inn á síðuna.
17.11.2011 21:57
Albúm 7 sem reyndar er albúm 6

Flestar myndirnar í þessu albúmi eru teknar á árinu 1989 þegar við fórum til Spánar í fyrsta skipti.
Farið var um páskana við komust rétt suður áður en brast á með norðan stórhríð. Systa og Stebbi komust ekki frá Akureyri fyrr en rétt fyrir flug út byðum við eftir þeim á Reykjarvíkurflugvelli og beint út á Keflavíkurvöll. Við fórum með ferðaskrifstofu sem hét Veröld og var þetta fyrsta ferð hennar.
Flugvélinni var snúið við eftir flugtak, eldsneyti losað á flugi og lent aftur í Keflavík, sennilega er Bryndís flughrædd síðan. Ferðaskrifstofan fór svo á hausinn nokkrum árum síðar, en eigendur stofnuðu aðra sem heitir Heimsferðir
Svo vorum við rænd en fengum nokkuð af peninginum aftur 
Ég tók nú ekki eftir því þarna um árið að Signý hafði klætt mig í stíl bæði í glansandi gráu.
Þessi mynd er tekin í spilavíti ég féll lánað hjá Ingvari 5000 kall og skuldaði honum þá 10.000 kall Spilaði 21 borgaði Ingvari 10.000 kallinn eftir nokkrar umferðir.
19.09.2011 21:48
Komin heim frá Tyrklandi
Er kominn frá Tyrklandi heldur feitari en þegar ég fór þangað, enda var bæði matur og vín innifalið í verði ferðarinnar, 10 kg komin.
Ekki er nú betra ástandið á henni Signýju held að hún hafi þyngst um heil 12 kg
04.09.2011 23:31
Tyrkland

Ég gómaði Signýju heima hjá þessum Tyrkja í dag, takið eftir klæðnaðinum Signý alveg nakin neðst en Tyrkinn kappklæddur að neðan og ber að ofan.

Svo var hann Pési frændi að gifta sig, vorum í giftingu, frábært.

Við röltum inn í Kaldalón eina helgina í haust. Gistum í Dalbæ og lytum við hjá Berta og Öddu í Lyngholti.

01.09.2011 22:34
Ægir húsbílakall
Feimni Hafnfirðingurinn fór að vinna í apóteki. Fyrsta daginn kom inn kona sem bað um Tampax. Hafnfirðingurinn fór alveg í rusl og eldroðnaði en afgreiddi konuna. Síðan fór hann og talaði við apótekarann og og sagði að þetta gengi alveg hörmulega hjá sér því hann væri svo ægilega feiminn. Apótekarinn sagði honum að örvænta ekki, hann skyldi bara skapa samræður við kúnnann og þá batni þetta allt saman .Stuttu síðar kom kona í apótekið og bað um bómull."Já, já," sagði Hafnfirðingurinn, "Svo þú ert bara farin að rúlla upp sjálf?" ,,,,

Hún er ekki beinlínis ung lengur, orðin alveg fimmtíu og fimm ára en nú var hún sum sé komin í tískuna og hætt að nota brjóstahaldara. Hún hélt að það myndi töfra karlinn. "Sýnist þér þetta ekki yngja mig pínulítið upp?" spurði hún sextuga karlinn sinn. Hann leit áhugalaus upp úr dagblaðinu og sagði þurrlega:- "Ójú, þetta strekkir aðeins á húðinni til að fækka hrukkunum í andlitinu.
16.08.2011 21:11
Ótitlað
Hæsta tré Vestfjarðakjálkans er í Reykhólasveit
Fyrir skömmu var brugðið mælistiku á nokkur hæstu tré Vestfjarða til að fylgjast með hæðarmetum líkt og gert hefur verið öðru hverju frá aldamótum. Árið 2000 reyndist hæsta tré Vestfjarða vera í skóginum í Barmahlíð í Reykhólasveit ("hlíðin mín fríða") og var þá 14,2 m á hæð. Þetta er sitkagrenitré sem var gróðursett á árunum 1946-49. Núna í síðustu viku voru skógfræðinemar frá Hvanneyri þar á ferð og brugðu máli á tréð sem nú reyndist vera 18,3 m. Á ellefu árum hefur það því hækkað um liðlega fjóra metra. Þetta tré heldur enn sessi sínum sem hæsta tré Vestfjarða og allmörg tré í sama lundi eru litlu lægri.

Þetta kemur fram á fréttavefnum bb.is á Ísafirði.
Þar er jafnframt rætt við Sæmund Þorvaldsson á Læk í Dýrafirði, framkvæmdastjóra Skjólskóga á Vestfjörðum. Hann segir að liðlega 311.000 skógarplöntum hafi verið plantað af skógarbændum á starfssvæði Skjólskóga þetta sumarið. Nokkur vandamál hafi verið í gróðursetningum vegna þurrka og viðbúið að skakkaföll séu þar nokkur.
Þótt vorið hafi ekki verið hlýtt segir Sæmundur að góðviðri og hlýindi einkum í júlímánuði hafi gagnast trjágróðri vel á Vestfjörðum. Engar tiltakanlegar skemmdir urðu vegna vorkulda en tré voru lengi að hefja vöxt.
Hæsta öspin á Vestfjörðum sem starfsmönnum Skjólskóga er kunnugt um stendur í húsagarði í Haukadal í Dýrafirði (Miðbær). Tréð var mælt um aldamót og var þá 11,6 metrar en var gróðursett sem um eins metra há planta árið 1974. Nú er þetta tré 17,4 metrar og hefur hækkað um nærri sex metra á tólf árum. Ef svo fer fram sem horfir má reikna með að 20 metra trjáhæðarmarkinu verði náð á Vestfjörðum á næstu fjórum til sex árum, segir Sæmundur.
13.08.2011 22:17
Þegar Signý var ung
Við erum náttúrulega löngu hætt að reykja.
Flaskan á borðinu er ekki okkar, það á hana einhver annar, við drekkum bara bjór og svolítið rauðvín.
Myndir frá vini mínum Hauki frá Hrófá, en hann dó í sumar blessaður kallinn.
Myndir sennilega teknar 1974
11.08.2011 21:50
Strandveiðar

:Það hefur fiskast ágætlega á strandveiðunum í sumar þó það hafi ekki alltaf verið jafngott og hjá Sverrir hér

Haffi kom í land með krók í fingrinum , Sverrir brunaði út aftur og kom í land með 800 kg ég fór með sem áhugamaður.
Nokkrar nýjar myndir í albúmi sumar 2011.
Smellið á linkinn hér á neðan þar er myndband......
http://www.facebook.com/l.php?u=https%3A%2F%2Fpicasaweb.google.com%2F114398028477669677956%2FBland%235639747040398711394&h=WAQCXsUoJAQCEcoDPhPAuwqVmO4QLwS_wfmdasluqdGyOPw
14.05.2011 16:40
Ættarmót
Loksins er komið að því að afkomendur Einars Jónssonar f. 15.08.31 d.
07.06.2001 og Eyrúnar Gísladóttur f. 12.06.33, haldi ættarmót.
Ættarmótið verður haldið helgina 24-26 júní 2011 að Þórisstöðumi Svínahrepp.301 Akranes
Fólk getur komið þegar því henntar eina sem verður á dagskránni er að hitta
hvort annað njóta samvista, og snæða saman kvöldverð milli kl. 20 -?
laugardagskvöldið 25 júní í sal sem er þarna á staðnum. Allir koma með sinn
mat og sjá um sig. Tjaldstæði eru á staðnum fyrir þá sem hafa áhuga að eyða
helginni í að kynnast góðum hópi ættingja og afkomenda þeirra. Verðum við
systkynin mætt á föstudagskveldinu til að taka á móti ykkur um kl. 18 og vísa á
tjaldstæðin.
Einar var yngstur af systkynunum frá Bjarnanesi og erum við því síðust í
röðinni að svo stöddu að halda utan um þetta ættarmót, spurning er hvert
framhaldið verður. Vonumst við til að sjá ykkur sem flest og gaman væri ef
einn í hverjum hópi tæki saman til glöggvunar hve margir eru komnir út af
hverjum. T.d afkomendur; Elíasar, Sigurveigar, Sigríðar, Matthíu, Guðrúnar,
Brynhildar, Ingimundar og Sigurðar Þorbjarnar. Verðinu er stillt í hóf.
Kærar kveðjur;
Sævar, Ásdís, Halldór Jón, Sóley, Sigríður Björg, Margrét Lilja og Eyrún.
12.03.2011 11:07
Höfðinginn í heimsókn

Höfðinginn kom í heimsókn á sínum fjallabíl. Ég hélt nú að kallin væri nú frekar rauður heldur en blár en hann var blár eins og sjá má.
Við fórum að smakka hákarlinn það er greinilega nóg til

Skruppum á Sandnes og sáum þar minkaspor. Brunuðum að Bassastöðum og fengum stórbóndann þar til að egna gildrur. Hér sést Brandur Bassi egna gildru agnið er rauðmagi frá Dóra á Drangsnesi.
Síðast þegar við höfðum spurnir af minknum var hann enn á lífi og var að bíða eftir vorinu, ættlar öruglega að fara í Hólmann í vor. Höfðinginn og ég gerðum okkur klára, fórum til Mása og stilltum riflanna, hittum báðir fimmeyring á 100 metrum og erum nú tilbúnir að verjast innrás í Hólmann í vor.

Eins og ég geri oftast set ég hér eina mynd af hr.Gordon.
15.02.2011 21:10
Getur verið að búið sé að finna heitavatið á Hólmavík ?????
Í dag þegar ég var að koma úr göngunni með hr. Gordon rakst ég á Guðmund Björnsson og nokkra kappa sem voru að mæla hitan í holunni sem Guðmundur lét bora.
Hitinn í holunni reyndist vera þó nokkur eða 12,4°¨C á 145 metra dýpi gerir það ekki 80¨°C á 935 metrum . Þá er nú bara spurningin að bora og finna vatnið.
Allt var skráð í votta viðurvist til að ekki væri hægt að rengja niðurstöðuna eins og gert hafði verið áður.
Þarna er líka hellingur af 12°c heitu vatni eða um 3l.sek sem gera 260 tonn á sólarhring. Ég veit ekki hvað mikið vatn er notað hér á Hólmavík en þetta gæti dugað.
Veit að það átti að mæla hitan í holunni hjá Sæsa Ben en veit ekki um niðurstöðu úr þeim mælingum.
Hef ekki trú á því að þær séu verri eftir því sem Sæsi sagði mér um daginn.
04.02.2011 20:59
febrúar blogg

Var að skila veiðiskýrslunni vegna rjúpnaveiðanna í haust við Hr, Gordon fengum um 30 st .
Þessi sat á grindverkinu heima þegar við komum úr einni veiðiferðinni.

Hákarlinn sem ég fékk síðastliðið vor er að verða klár og ef að einhverjum vantar hákarl er hann náttúrulega til sölu fyrir gott verð, bara að hringa í síma 8924687

Greinilega sjótjón á bryggjunni á Sandnesi, Landgangurinn farinn, en bryggjan virðist ekki vera skemmd.

Fékk Brand á Bassastöðum til að bjarga landganginum á þurrt.

Verð svo að setja hér eina mynd af Helgu Gunnars af því hún var edrú á þorranum.







